Frítt að panta

Gjaldfrjálsar frátektir!
Gjaldfrjálsar frátektir!

Af gefnu tilefni viljum við vekja athygli á því að við erum með nýtt fyrirkomulag á pöntunum og frátektum. Nú fá þeir sem panta safnefni þessi skilaboð:

Eftirfarandi safnefni sem þú tókst frá í Gegni þann xx/xx/xx er komið á safnið og bíður þín í afgreiðslu útlánadeildar. Vinsamlega láttu vita ef þú þarft ekki lengur á því að halda.

Ekki verður haft samband við þig aftur vegna þessarar frátektar en þú þarft að nálgast safnefnið innan 5 daga.
Ekkert gjald er tekið fyrir frátektina nema um sé að ræða bók sem er í skammtímaláni (lánstími 10 dagar) en þá kostar frátektin 250 krónur.

Héðan í frá er sum sé hægt að panta bækur og annað án gjalds nema um nýtt efni sé að ræða. Sérstök hilla hefur verið sett upp í afgreiðslunni þar sem fráteknum bókum er raðað upp eftir dagsetningum.

Ef lánþegi vill fá upphringingu vegna pantana þarf að greiða fyrir það.

Eingöngu verður haft samband við lánþega einu sinni vegna frátekta.

fratektir

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan