(svar) Föstudagsþraut 2024 nr. 14 - Gamla heimasíðan og fimm breytingar!

(svar) Kæru þrauta- og helgarelskandi safngestir! Nú er kominn svokallaður fössari og það þýðir margt, en meðal annars þetta: föstudagsþrautin er mætt!!!

Og þar sem þrautahöfundurinn sjálfur var að rifja upp gamla tíma og gamlar útgáfur af hinum og þessum vefsíðum, þá er gaman að skreppa yfir á Vefsafn.is og sjá hvernig hinar og þessar heimasíður litu út. Til dæmis amtsbok.is - heimasíðan okkar! Myndin sem er notuð í þrautinni er frá 1999 eða þegar heimasíða bókasafnsins leit þannig út (sko, myndin er bara hluti af forsíðunni samt). Þá er líka hægt að skoða þarna hvers konar safnkost við buðum upp á. Það voru engir mynddiskar þá, engin kökuform og hvað þá borðspil! En nostalgían getur verið skemmtileg, hún getur líka verið hættuleg því það er betra að horfa fram á við heldur en að festast í fortíðinni, ekki satt? Læra af henni svo það gagnist í framtíðinni...

En formið er það sama - finnið fimm breytingar á milli myndanna og svo bíðið þið eftir réttum svörum sem birtast eftir helgi!

Eigið góða helgi og munið að veðrið er alltaf best á Akureyri!

Old webpage

 

Rétt svar:

Gömul heimasíða Amtsbókasafnsins

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan