(svar) Föstudagsþraut 2024 nr. 13 - Almenningstölvur og breytingarnar fimm!

(svar) Kæru og yndislegu safngestir! Nú er kominn föstudagur og hann er ekki langur, bara 24 klst. En vegna nýlegrar tilfærslu hjá okkur á almenningstölvunum, þá ákváðum við að hafa föstudagsþrautina þeim til heiðurs!

Þessar tölvur voru á kaffiteríunni (marmaranum) en okkur þykir þessi staðsetning á 1. hæð undir gluggunum á austurvegg gömlu byggingarinnar vera mjög góð og þykjumst viss um að ykkur finnist það líka!! Er það ekki?

En þrautin er sú sama og áður... oft áður alla vega ... og þið eigið einfaldlega að finna fimm breytingar á milli myndanna hérna og svo koma réttu svörin eftir helgi!

Athugið að opið er á laugardögum í vetur 11-16 og laugardaginn 6. apríl verður aktívur!!

Eigið samt góða helgi og hafið gaman af þrautum og öðru léttmeti!

 

Tvær tölvur á borðum inn á milli bókahillna

 

Rétt svar:

Tvær tölvur á borðum og bókahillur til hliðar

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan