Amtsins ævintýri!

Kæru safngestir með ímyndunaraflið og lestraráhugann! Þessi mynd náðist af Amtinu fyrr í dag ...

Amtsbókasafnið á Akureyri er auðvitað fullt af alls kyns ævintýrum, skepnum, sögum, fróðleik og mörgu af því sem ímyndunaraflið okkar nær yfir, er það ekki?

Við það að lesa bækur flytjumst við yfir í þessa heima og þess vegna er ekki svo fjarri lagi að mynd sem þessi eigi við hjá mörgum.

Hvar annars staðar eru Harry Potter, Katniss Everdeen, Yoda, Luke Skywalker, Ethan Hunt og fleiri að tala saman?

Að ekki sé talað um Erlend lögreglumann, Snorra sem fór alveg með gervigreindina, uppvakningana hans Ævars o.fl. o.fl.

Verið velkomin í undraheim Amtsbókasafnsins!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan