29.apr

Spilafjör

Spilafjör

Spilafjör fyrir 9-13 ára er frá kl. 15-16 alla mánudaga á Amtsbókasafninu yfir vetrartímann.

Þá eru spiluð borðspil í eigu safnsins en einnig mega krakkar koma með sína eigin spil og kenna öðrum.

Ekki þarf að skrá sig heldur er nóg að mæta á staðinn.

Hrönn Björgvinsdóttir heldur utan hópinn og leiðbeinir, hægt er að senda henni fyrirspurnir á hronnb@amtsbok.is.

Öll á aldrinum 9-13 ára velkomin!

 

Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.