Samkeppni

Akureyrarbær, í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands, efnir til hugmyndasamkeppni um nýtt kennileiti fyrir heimskautsbauginn í Grímsey. Leitað er eftir hugmyndum að nýju kennileiti fyrir heimskautsbauginn sem sett verður upp við bauginn. Kennileitinu er ætlað að vekja athygli á Grímsey sem ferðamannastað.

Leitað er að myndrænu kennileiti eyjarinnar sem gæti orðið að aðdráttarafli í sjálfu sér og sem hægt er að útfæra á ólíka vegu t.d. við gerð minjagripa og sem tákni fyrir eyjuna. Kennileitið þarf að styrkja Grímsey og stöðu hennar sem nyrsta odda Íslands, á heimskautsbaugnum. Unnið verður með vinningshafa að frekari hönnun og útfærslu tillögunnar. Samkeppnin fer fram samkvæmt samkeppnislýsingu, fylgigögnum og samkeppnisreglum Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

Hagnýtar upplýsingar um samkeppnina - stiklað á stóru

Samkeppnin er opin menntuðum hönnuðum, arkitektum og myndlistamönnum. Ef teymi vinnur saman að tillögunni er nóg að einn úr teyminu uppfylli menntunarkröfur.

Tillögunni skal skilað á að hámarki fjórum A3 pappaörkum auk greinagerðar að hámarki 1000 orð. Keppendur skila inn þeim teikningum sem þeir telja útskýra verkið á sem skilmerkilegastan hátt. Gert er ýtarlega grein fyrir þessu í keppnislýsingu, sem hægt er hlaða niður hér fyrir neðan.

Dómnefnd skipa:
Tilnefndir af Akureyrarbæ:
• Logi Már Einarsson arkitekt, Akureyri. Formaður dómnefndar
• Friðþjófur Helgason ljósmyndari, Reykjavík
• Margrét Jónsdóttir leirlistakona, SÍM, Akureyri

Tilnefndir af HMÍ:
• Ragnhildur Skarphéðinsdóttir landslagsarkitekt , FÍLA, Reykjavík
• Helga Jósepsdóttir vöruhönnuður HMÍ, Akureyri

Dómnefnd gerir skriflega grein fyrir vali. Dómnefnd er heimilt að hafna öllum tillögum.

Fyrirspurnarfrestur er til miðnættis 26. nóvember 2013. Fyrirspurnum skal beint í tölvupósti til trúnaðarmanns keppninnar, Þórhalls Kristjánssonar á samkeppni@honnunarmidstod.is. Svör við fyrirspurnum verða birt á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar viku eftir að fyrirspurnarfresti lýkur (3.desember 2013) .

Skilafrestur samkeppnistillagna er til föstudagsins 31. janúar 2014 kl.12:00.

Keppnislýsing


Fylgiskjöl:
Skjal 1
Skjal 2
Skjal 3
Skjal 4

Ítarefni - texti um Grímsey

Myndir

Kvikmyndir og annað efni

Síðast uppfært 13. nóvember 2013