Beint í efni

Tökum höndum saman og hreinsum bæinn eftir veturinn

Vorhreinsun sveitarfélagsins er í fullum gangi, opin svæði eru hreinsuð ásamt því að götur, gangstéttar og stígar eru sópaðir og þvegið er af miklum krafti.

 Næstu skref okkar allra:

-       Snyrtum garða og gróður í kringum heimili og vinnustaði.

-       Tínum rusl utan lóðarmarka, við næsta göngustíg og/eða á nálægu útivistarsvæði.

Gámar fyrir garðaúrgang verða staðsettir á eftirtöldum stöðum frá 9. maí til og með 19. maí:

·       Bugðusíða við leiksvæði

·       Aðalstræti sunnan Duggufjöru

·       Bónus við Kjarnagötu

·       Bónus Langholti

·       Krambúðin Byggðavegi

·       Nettó Hrísalundi

·       Ráðhús Geislagötu

Bæjarbúar eru hvattir til að nýta gámana en einnig er tekið við garðaúrgangi og fleiru á gámasvæðinu við Réttarhvamm og á móttökustöðinni Hlíðarvöllum við Rangárvelli.

Afgreiðslutími gámasvæðisins við Réttarhvamm breytist þegar sumaropnun tekur gildi 16. maí og verður þá opið virka daga klukkan 13–20.

Vetraropnun

Frá 16. ágúst til 15. maí

Mánudagar til föstudagar kl. 13–18

Laugardagar og sunnudagar kl. 13–17

Sumaropnun

Frá 16. maí – 31. ágúst

Mánudagar til föstudagar kl. 13–20

Laugardagar og sunudagar kl. 13–17