Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 273
- Kl. 08:15 - 09:30
- Fundarherbergi FAK
- Fundur nr. 273
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Eiríkur Jónsson
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
1. Hof menningarhús - skjávarpi í Hamraborg
Lögð fram beiðni frá stjórn Akureyrarstofu dagsett 7. janúar 2016 um kaup á nýjum skjávarpa fyrir Hamraborg í Hofi.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kaupin og að þau verði tekin af liðnum óráðstafað til búnaðarkaupa 2016.
2. Þórunnarstræti 99 - aðstaða fyrir Skátafélagið Klakk í kjallara
Lögð fram beiðni frá samfélags- og mannréttindadeild um kaup á búnaði í nýja félagsaðstöðu Skátana í Þórunnarstræti 99.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir kaupin og að þau verði tekin af liðnum óráðstafað til búnaðarkaupa 2016.
Þorsteinn Hlynur Jónsson Æ-lista sat hjá við afgreiðsluna.3. Listasafn - endurbætur
Lagðar fram niðurstöður verðkannana fyrir lagna- og loftræstihönnun og raflagnahönnun.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við lægstbjóðendur, Mannvit í lagna- og loftræstihönnun og Raftákn í raflagnahönnun.
4. Efniskaup FA - útboð 2016
Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2016 vegna niðurstöðu útboðsins.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að samið verði við þá aðila sem lagt er til í framlögðum gögnum.
5. Almenningssalerni undir kirkjutröppunum - beiðni um afnot
Lagt fram erindi dagsett 10. nóvember 2015 frá Finni Sigurðssyni, Ingibjörgu Berglindi Guðmundsdóttur og Björgu Mörtu Gunnarsdóttur þar sem þau óska eftir afnotum af húsnæðinu.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar getur ekki orðið við erindinu að sinni. Framtíð húsnæðisins er í skoðun og liggur niðurstaða ekki fyrir enn sem komið er.
6. Félagslegar leiguíbúðir - framtíðarsýn
Tilnefning nefndarmanns í verkefnislið vegna framtíðarsýnar fyrir félagslega húsnæðiskerfi Akureyrarbæjar.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar tilnefnir Höllu Björk Reynisdóttur L-lista í verkefnisliðið Ingibjörgu Ólöfu Isaksen B-lista til vara og óskar eftir tilnefningu frá velferðarráði, búsetudeild og fjölskyldudeild Akureyrarbæjar.
7. Fasteignir Akureyrarbæjar - úttekt á múrkerfum á húsum í eigu bæjarins
Lagt fram minnisblað dagsett 19. janúar 2016 vegna fyrirspurnar Njáls Trausta Friðbertssonar D-lista um ástand múrkerfa á húseignum bæjarins.