Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 279
- Kl. 09:00 - 09:25
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 279
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
1. Færanlegar kennslustofur - sala 2016
Tekinn fyrir að nýju 2. dagskrárliður 278. fundar stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar 6. maí 2016:
Lögð fram tilboð sem bárust í tvær færanlegar kennslustofur.Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir sölu á stofunum til hæstbjóðanda, Lilju Sigríðar Jónsdóttur.
2. Boginn - endurnýjun á gervigrasi
Tekinn fyrir að nýju 3. dagskrárliður 278. fundar stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar frá 6. maí 2016:
Farið yfir tilboð sem bárust í endurnýjun á gervigrasi í Boganum.Ákvörðun frestað til næsta fundar.
3. Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Lagt fram minnisblað dagsett 18. maí 2016 um áætlaðan kostnað við fyrirhugaðar framkvæmdir við sundlaugarsvæðið og framkvæmdaáætlun fyrir verkið.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir að framkvæmdin verði boðin út.
4. Naustaskóli - íþróttahús
Lögð fram stöðuskýrsla 2 fyrir framkvæmdina dagsett 19. maí 2016.
5. Skautahöllin - nýtt svell
Lögð fram stöðuskýrsla 2 fyrir framkvæmdina dagsett 19. maí 2016.