Vissir þú að Akureyrarbær heldur úti líflegum samfélagsmiðlum?

Á Facebook og Instagram er fréttum og ýmsum fróðleik miðlað um starfsemi sveitarfélagsins og birtar myndir. Á Facebook-síðunni hefur nýtt verkefni undir yfirskriftinni #Akureyringar vakið töluverða athygli. Það snýst um að kynna Akureyringa úr ýmsum áttum, birta mynd af þeim og miðla frásögn. Oft eru þetta sögur frá starfsfólki Akureyrarbæjar eða notendum þjónustunnar. Nú síðast var það Pétur Ingi, sviðsstjóri skipulagssviðs, sem sagði okkur sögu.

Starfsfólk er hvatt til að fylgja Akureyrarbæ á Facebook og Instagram og taka ef til vill þátt í því sem fram fer á síðunum með deilingum og öðru slíku. Eins eru ábendingar vel þegnar um áhugaverða Akureyringa sem gætu sagt skemmtilegar sögur. Slíkar ábendingar má senda á Jón Þór Kristjánsson, verkefnastjóra upplýsingamiðlunar hjá Akureyrarstofu – jon.thor@akureyri.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan