Verklag vegna áreitnismála

Vakin er athygli starfsfólks á upplýsingum um verklag í tengslum við áreitni á vinnustað og hvert starfsfólk getur leitað ráðgjafar upplifi það slíkar aðstæður á vinnustað eða verður vitni að þeim.

Upplýsingar þess efnis er að finna undir efnisflokknum Starfsmannahandbók > Einelti - áreitni - ofbeldi.

Þá er það ítrekað að allt starfsfólk Akureyrarbæjar á rétt á því að komið sé fram við það af virðingu og að það hafi tækifæri til að sinna störfum sínum án þess að eiga á hættu einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni eða annarskonar ofbeldi.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan