Tilkynning til starfsmanna Akureyrabæjar sem voru félagsmenn í Einingu-Iðju á árinu 2021

Félagsmenn í Einingu-Iðju sem starfa núna eða störfuðu hjá Akureyrarbæ á árinu 2021 munu fá greitt úr félagsmannasjóði 1. febrúar 2022. Nýir starfsmenn og þeir sem vilja breyta upplýsingum um bankareikninga þurfa að gefa upp reikningsupplýsingar til að tryggja að greiðsla úr sjóðnum berist til þeirra. Hægt er að skrá reikningsupplýsingar á heimasíðunni www.sgs.is undir flipanum Félagsmannasjóður.

Athygli er vakin á því að sumarstarfsfólk og starfsfólk sem lokið hefur störfum hjá Akureyrarbæ eiga rétt á þessari greiðslu. Stjórnendur og núverandi starfsfólk er beðið um að koma þessum skilaboðum áfram til þeirra.

Nánari upplýsingar má nálgast HÉR.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan