Starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku 2022

Í gær, 14. júní fór fram ellefta NORAK starfsmannagolfmót Akureyrarbæjar og Norðurorku.
Sólin skein á keppendurna 26 sem margir hverjir náðu að nýta sér aðstæður og láta ljós sitt skína á golfvellinum.

Mótafyrirkomulagið var níu holu 3-4ra manna Texas Scramble auk þess sem það voru nándarverðlaun og keppt í lengsta upphafshögginu.
Í sigurliði NORAK 2022 voru þau Halla Björk Reynisdóttir, Pálína Ásbjörnsdóttir, Egill Valgeirsson og Einar Kristján Grant.
Í öðru sæti urðu Vigfús Ingi Hauksson, Inga Hrönn Einarsdóttir, Guðmundur Smári Gunnarsson og Anna Pálína Jóhannsdóttir.
Í þriðja sæti urðu Baldvin Orri Smárason, Anna Einarsdóttir og Helga Lyngdal.

Verðlaun í nándarkeppninni (næst holu) hlutu Guðríður Sveinsdóttir (5,25m) á 11. braut, Egill Valgeirsson (17,5m) á 14. braut og Vilberg Geir Hjaltalín (7,4m) á 18. braut.
Sigurvegarar í keppni um lengsta upphafshöggið á 15. braut urðu Egill Valgeirsson og Guðríður Sveinsdóttir.

Í mótslok var svo veittur fjöldi úrdráttarvinninga og þakkar mótanefnd styrktaraðilum kærlega fyrir góðan stuðning.

Á meðfylgjandi mynd eru liðsmenn efstu þriggja liðanna á mótinu ásamt nándar- og upphafshöggsverðlaunahöfum.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan