Símenntun og starfsþróun starfsmanna - styrkir og sjóðir

Nú er fræðsla að fara á fullt á hinum ýmsum stöðum. Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY) býður til að mynda upp á fjölbreytt námskeið og Símenntun Háskólans á Akureyri. Það er einnig hægt að sækja námskeið suður og sum eru jafnvel kennd í fjarkennslu.

Mörg stéttarfélög bjóða upp á styrki er kemur að símenntun og starfsþróun starfsmanna. Sum stéttarfélög eru aðilar að fræðslustofnunum og gefst þá félagsmönnum tækifæri á að sækja sum námskeið frítt. Á meðan önnur stéttarfélög bjóða upp á fræðsludagskrá fyrir félagsmenn.

Dæmi um þjónustu fyrir félagsmenn stéttarfélaga:
Kjölur mannauðssjóður - Félagsmenn Kjalar geta sótt um styrki í Mannauðssjóð Kjalar, þar er hægt að fá styrki fyrir náms- og kynnisferðum og fyrir fræðsluverkefnum.

Nám og þjónusta Starfsmenntar - fræðsluseturs er félagsmönnum aðildarfélaga að kostnaðarlausu og eru Kjölur og Sameyki, stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu með aðild að Starfsmennt. Starfsmennt hefur hafið samstarf við SÍMEY svo sum námskeið hjá þeim eru félagsmönnum að kostnaðarlausu. Þá fer skráning á námskeið fram í gegnum Starfsmennt, smennt.is.

Sveitamennt veitir félagsmönnum Einingar-Iðju og öðrum aðildarfélögum sínum styrki til þess að þeir eigi kost á að sækja nám/námskeið með vinnu án verulegs kostnaðar.

Starfsþróunarsetur háskólamanna veitir félagsmönnum aðildarfélaga BHM styrki til náms og má þar nefna styrki vegna skólagjalda, námskeiðsgjalda og ráðstefnugjalda.

Félagsmenn Kennarasambands Íslands sem eru virkir og greidd eru félagsgjöld fyrir geta sótt um styrki í endurmenntunarsjóði. Það á við um kennara á leikskólum, grunnskólum og í tónlistarskólum. Einnig er fræðslu- og kynningarsjóður og starfsþróunarsjóður fyrir annað háskólamenntað fólk sem eru í sambandinu. 

Hér hefur aðeins verið stiklað á því helsta en fleiri fræðslusjóðir eru til og hvetjum við starfsmenn til að kynna sér styrki hjá sínu stéttarfélagi. Stéttarfélög bjóða einnig upp á ýmsa aðra styrki sem hægt er að kynna sér á heimasíðum félaganna.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan