Nýr forstöðumaður í Hlíðarfjalli og afsláttur af vetrarkortum

Hlíðarfjall
Hlíðarfjall

Brynjar Helgi Ásgeirsson er nýr forstöðumaður í Hlíðarfjalli. Við bjóðum hann velkominn til starfa.

Ákveðið hefur verið að þeir sem áttu vetrarkort í Hlíðarfjall síðasta vetur fái góðan afslátt af kortum fyrir komandi skíðavetur. Þetta er viðleitni til að bæta upp fyrir þá daga sem handhafar skíðakorta urðu af síðasta vetur þegar loka þurfti skíðasvæðinu vegna Covid-19 undir lok mars.

Tilboðið gildir til 14. desember.

Vetrarkortin er hægt að kaupa á heimasíðu Hlíðarfjalls www.hlidarfjall.is með því að velja appelsínugula flipann efst fyrir miðju „ KAUPA MIÐA í FJALLIÐ". Þar undir er að finna hlekk fyrir skráningu á tilboðslykli sem nú þegar hefur verið sendur til vetrarkortshafa 2019-2020.
Vetrarkort fyrir fullorðna verða jafnframt seld í forsölu fram að opnun skíðasvæðisins og er verðið 40.500 kr.
Börn fá 50% aflsátt af vetrakortum og er verðið 7.000 kr. í stað 14.000 kr. Hægt verður að kaupa barnakort án tilboðslykils allan veturinn.


Nánari upplýsinar má finna á www.hidarfjall.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan