Ný skatthlutföll 2020 og breytt upphæð persónuafsláttar

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur auglýst fjárhæðarmörk tekjuskattsstofns, innheimtuhlutfall í staðgreiðslu og persónuafslátt fyrir árið 2020.
Innheimtuhlutfall í staðgreiðslu samanstendur annars vegar af þrepaskiptum tekjuskatti, sem rennur til ríkissjóðs, og hins vegar af meðalútsvari sveitarfélaganna. Skattþrep í staðgreiðslu 2020 verða eftirfarandi:


Skattþrep
1. þrep. Af tekjum 0 - 336.916 kr. - 35,04%
2. þrep Af tekjum 336.917 - 945.873 kr. - 37,19%
3. þrep Af tekjum yfir 945.873 kr. - 46,24%


Persónuafsláttur á árinu 2020 verður 655.538 kr., eða 54.628 kr. á mánuði.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan