Milljarður rís 2018 í Hofi 16. mars


Dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi í Hofi 16. mars kl. 12.00 í boði UN Women á Íslandi.
Ofbeldi gegn konum er vandamál um allan heim – tökum afstöðu gegn ofbeldinu, mætum og dönsum!

Upplýsingar um viðburðinn má finna á Facebook.  

Milljarður rís er dansbylting sem haldin er víða um heim. Með samtakamætti lætur heimsbyggðin til sín taka. Yfir milljarður karla, kvenna og barna kemur saman til að dansa fyrir réttlæti, fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi.

Í krafti #MeToo byltingarinnar hafa konur úr ólíkum geirum stigið fram og lýst því kynbundna ofbeldi og kynferðislegu áreitni sem þær hafa þurft að þola. Byltingin er hafin og ofbeldi í garð kvenna verður ekki lengur liðið. Nú er því komið að því – í Hofi verða sláandi frásagnir kvenna af kynbundnu ofbeldi fluttar.

Í sjötta sinn ætlum við að sameinast í yfir 200 löndum og dansa fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og sýna þeim samstöðu. Í fyrra komu saman um fjögur þúsund manns á öllum aldri um allt land í tilefni af Milljarður rís. Dansað var af krafti um allt land; í Reykjavík, Akureyri, Seyðisfirði, Reykjanesbæ, Neskaupstað, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum og Borgarnesi. Samtakamátturinn var allsráðandi!

Af gefnu tilefni hvetur UN Women á Íslandi alla til að senda smsið KONUR í 1900 (1900 kr.) og lýsa upp myrkur Róhingjakvenna í Bangladess sem þurft að þola ofsóknir og gróft ofbeldi.

#fokkofbeldi
#milljardurris18

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan