Lífshlaupið hefst 2. febrúar, opnað fyrir skráningar 19. janúar

Nú styttist í að Lífshlaupið 2022 fari af stað! Opnað verður fyrir skráningar þann 19. janúar og það er um að gera að fara að hvetja samstarfsfólk og huga að liðinu/liðunum á þínum vinnustað.

Lífshlaupið verður ræst þann 2. febrúar og stendur keppnin yfir í þrjár vikur fyrir vinnustaði en tvær vikur fyrir grunn- og framhaldsskóla. Allar upplýsingar um skráningu í Lífshlaupið sem og reglur má finna hér og myndrænar leiðbeiningar um það hvernig maður skráir sig til leiks má finna hér á ensku.

Nú er hægt að sækja sér lífshlaups app. Appið er frítt og einfaldar skráningu á hreyfingu á meðan Lífshlaupið stendur yfir. Nánari upplýsingar má finna hér.

Starfsfólk á skrifstofu fræðslusviðs komu, sáu og sigrðuðu báðar keppnir Lífshlaupsins í fyrra en þau hlutu tvo bikara fyrir flesta daga og mínútur. Ráðhúsið á Akureyri fékk einnig viðurkenningu frá Lífshlaupinu fyrir flestar mínútur í sínum flokki.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan