Launaseðlar og launamiðar á island.is

Launaseðlar og launamiðar frá Akureyrarbæ eru nú birtir á island.is og einnig er hægt að nálgast þá í appinu island.is.

Innskráning á mínar síður á island.is

  • Fara inn á island.is og velja Mínar síður.
  • Smella á hnapp Innskráning fyrir innskráningu með rafrænum skilríkjum eða velja Eldri Mínar síður en sú síða er fyrir einstaklinga sem eru ekki með rafræn skilríki.
  • Launaseðlar og launamiðar birtast í Pósthólfinu ásamt ýmsum öðrum skjölum sem hafa verið send frá opinberum aðilum.

island.is appið

  • Upplýsingar um hvar hægt er að sækja appið er að finna á heimasíðu island.is en bæði er hægt að hlaða niður appinu eða skanna QR kóða.
  • Launaseðlar og launamiðar birtast í Pósthólfinu ásamt ýmsum öðrum skjölum sem hafa verið send frá opinberum aðilum.

Starfsmannavefurinn eg.akureyri.is verður lagður niður í vor og eftir það verður eingöngu hægt að nálgast launaseðla og launamiða á island.is.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan