Konur taka af skarið!

Viltu láta til þín taka og hafa áhrif á verkalýðsbaráttuna og samfélagið?

Föstudaginn 9. nóvember frá 8.30 til 15.30 fer fram námskeið um þátttöku í verkalýðshreyfingunni í sal Einingar- Iðju við Skipagötu á Akureyri.

Námskeiðið er opið öllum konum sem eru félagar í Starfsgreinasambandi Íslands eða í starfsmannafélögum sveitarfélaganna, þeim að kostnaðarlausu. Skráning skal berast í síðasta lagi miðvikudaginn 7. nóvember á netfangið: kristinheba@akak.is eða í síma 461 4006.

Dagskrá:

• Að bjóða kynjakerfinu birginn
• Staða verkalýðsbaráttunnar í dag
• Uppbygging verkalýðsfélaganna
• Leiðtogaþjálfun
• Að hafa áhrif og koma sínu á framfæri
• Að starfa í verkalýðshreyfingunni

 

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan