Hvernig væri að skrá sig til leiks í Lífshlaupið?

Lífshlaupið er vinnustaðakeppni á vegum ÍSÍ og hefur það megin markmið að hvetja landsmenn til þess að hreyfa sig og tileinka sér heilbrigða lífshætti. Búið er að opna fyrir skráningar á lífshlaupið.is

Lífshlaupið verður svo ræst miðvikudaginn 1. febrúar. Vinnustaðakeppnin stendur til 21. febrúar.

Hvaða vinnustaður verður með flesta dagana? En flestu mínúturnar? Hvaða starfsmenn fá útdráttarverðlaunin?

Heilsuráð Akureyrarbæjar hvetur alla vinnustaði Akureyrarbæjar til að taka þátt í vinnustaðakeppni Lífshlaupsins 2023, því líkt og undanfarin ár er keppnin færð heim í hérað þar sem Heilsuráð veitir viðurkenningar til vinnustaða Akureyrarbæjar sem:

a) sigrar í keppninni um flesta daga og

b) sigrar í keppninni um flestar mínútur.

Í ár er sú nýbreytni að þessar keppnir skiptast í tvo flokka; í flokki vinnustaða með 1-29 starfsmenn og flokki vinnustaða með 30+ starfsmenn. Það verða því fjórar viðurkenningar í pottinum!

Í ár verða enn og aftur útdráttarverðlaun á vegum Heilsuráðs. Hvað þýðir það? Jú, það þýðir að allir starfsmenn Akureyrarbæjar sem eru skráðir, hreyfa sig og skrá hreyfinguna í Lífshlaupið eiga möguleika á að vera dregnir út og fá vinning! En það er meira... ef starfsmaður hreyfir sig t.d. alla 20 dagana (og skráir) þá fer nafn hans 20 sinnum í pottinn! Góðir vinningar verða í boði.

Vinnustaðakeppni

Hver vinnustaður sér um að skrá sig til leiks. Þá stofnar einn starfsmaður vinnustaðinn í kerfinu og þarf að nota sína kennitölu. Síðan geta deildir, hæðir og slíkt skráð lið undir hvern vinnustað. Þá er einn liðsstjóri sem getur m.a. fylgst með hvernig gengur, hvatt vinnufélagana áfram og jafnvel haldið utan um að skrá alla hreyfingu þátttakanda. Hér neðst eru linkar á skjöl til að halda utan um slíka skráningu.

Þeir sem ætla að taka þátt þurfa að fara inn á heimasíðu lífshlaupsins (www.lifshlaupid.is) og skrá sig inn. Farið er í “Mínar síður” og fylgt fyrirmælum sem fram koma. Einnig eru ítarlegar leiðbeiningar undir “Skrá mig til leiks sem má finna undir “Keppnir” og “Vinnustaðakeppni”. Þeir sem eiga aðgang í Hjólað í vinnuna geta nota hann. Gott er að athuga hvort þinn vinnustaður hefur þegar verð stofnaður eða er til í gangagrunni Lífshlaupsins áður en stofnaður er “nýr” vinnustaður.

Það þarf að lágmarki að hreyfa sig í 30 mínútur á dag til þess að fá daginn skráðan en það má skrá allan tímann (mínútur) sem maður hreyfir sig viðkomandi dag. Það er ekki nauðsynlegt að skrá sig inn daglega en best er að skrá jafnt og þétt á meðan á vinnustaðakeppninni stendur. Hægt að skrá hreyfingu á sig í keppninni 5 daga aftur í tímann.

Nánari og ítarlegri upplýsingar má finna á Lífshlaupið.is

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan