Þitt svar skiptir máli! Allt vaktavinnufólk hvatt til að svara viðhorfskönnun um vaktavinnu frá Gallup.

Um þessar mundir er verið að gera mestu breytingar á fyrirkomulagi vinnutíma opinberra starfsmanna í áratugi undir yfirskriftinni „Betri vinnutími".

Samtök launafólks og opinberir launagreiðendur hafa tekið höndum saman um að mæla viðhorf til og árangur verkefnisins.

Skoðun starfsfólks á þessum breytingum skipta miklu máli fyrir þróun og áframhald verkefnisins „Betri vinnutími". Þitt svar skiptir því miklu máli.

Meginmarkmið breytinganna er að stuðla að umbótum í starfsemi stofnana, bæta vinnustaðamenningu og bæta samræmingu vinnu og einkalífs án þess að draga úr skilvirkni og gæðum þjónustu.

Síðasti dagur til að svara er sunnudagurinn 9. maí!

Hér má finna allar upplýsingar um betri vinnutíma í vaktavinnu (slóð).

Til að svara könnuninni smellir þú á slóðina sem þú fékkst senda í tölvupósti.

Gallup annast alla gagnavinnslu og framkvæmd könnunarinnar (Gallup er vinnsluaðili).

Gallup fer með öll svör sem trúnaðarmál. Sjá persónuverndarstefnu Gallup hér (slóð).

Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband við:

Tómas Bjarnason, Gallup (tomas.bjarnason@gallup.is)

Karl Sigurðsson, BSRB (karl@bsrb.is)

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan