Heilsueflandi samfélag á Akureyri

Akureyrarbær er heilsueflandi samfélag
Meginmarkmiðið með Heilsueflandi samfélag er að heilsa og líðan allra íbúa sé í fyrirrúmi í stefnumótun og aðgerðum og þannig skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa. Heilsuefling er ferli sem gerir fólki kleift að hafa aukin áhrif á heilsu sína og bæta hana. Hún miðar að því að hafa áhrif á lífsstíl fólks og skapa umhverfi sem styður fólk til þess að lifa heilsusamlegu lífi. Hugtakið felur einnig í sér að efla heilbrigði með því að skapa fólki félagslegar, menningarlegar og efnahagslegar aðstæður og umhverfi sem gera einstaklingum og samfélaginu kleift að auka hreysti og efla vitund og vilja til að viðhalda heilbrigði.

Vinnustaðakeppni ÍSÍ, "Hjólað í vinnuna" er maí.
Í lok maí "Hreyfivika UMFÍ".
Vissir þú að í Akureyrarbæ eru fjórar sundlaugar... ertu búin/n að prófa þær allar? Aftur?
Í hverju hverfi og um gervalla Akureyri er að finna fjölbreytta göngu-, hlaupa- og hjólastíga. Sagan segir að enginn einn hafi gengið/hlaupið/hjólað þá alla!
Á Akureyri og nágrenni eru margar áhugaverðar gönguleiðir, ýmist léttar, miðlungs eða krefjandi!
Allir geta notað sér leiðarkerfi strætó frítt á Akureyri.
Viðburðadagatal Ferðafélags Akureyrar er ávallt spennandi kostur að kíkja á og skoða þegar að huga á að útiveru og heilsueflingu!
Á Akureyri eru nokkrir frisbígolfvellir sem henta ungum sem eldri, byrjendum sem öðrum meisturum.
Kjarnaskógur, Hvammur, Hamrar og Naustaborgir eru útivistarparadísir í bakgarði Akureyrar og þar er fjöldi tækifæra til heilsueflingar, hvort sem er að ganga, hlaupa, leika eða hjóla. Í Kjarnaskógi eru m.a. fjórir frábærir strandblaksvellir.
Á Akureyri eru 22 íþróttafélög undir merkjum Íþróttabandalags Akureyrar, sem sinna jafnfjölbreyttri heilsueflingu og þau eru mörg, reyndar ríflega það!
Önnur afþreying, áhugaverðir staðir og viðburðir/hátíðir á Akureyri og nágrenni.

 

 

Heilsueflandi samfélag miðar að því að þróa samfélagslegan ramma utan um markvissa og heildræna heilsueflingu allra aldurshópa. Í þeim tilgangi eru lagðir til grundvallar fjórir áhrifaþættir heilbrigðis sem unnið er með, þ.e. næring, hreyfing, geðrækt og lífsgæði.

 

Síðast uppfært 12. maí 2023