29.okt

Út með meðvirkni - stærsti orsakavaldur kulnunar

Nýjustu fræði á sviði meðvirkni varpa betur ljósi á hvað nákvæmlega meðvirkni er, í hverju orsakir hennar liggja og með hvaða hætti hún tengist framkomu okkar og hegðun. Þegar meðvirkni er til staðar eru samskipti og líðan einstaklinga í töluverðu ójafnvægi. Einkenni meðvirkninnar eru til þess gerð að ýta undir slæm samskipti og auka álag sem með tímanum getur haft veruleg áhrif á streitu og jafnvel leitt til kulnunar (e. burnout).

Innan fyrirtækja er algengt að fólk upplifi erfiðleika með samskipti og að einfaldir hlutir verði flóknir af þeim sökum. Skortur á heilbrigðum samskiptum, mikil tilfinningasemi, lítill samstarfsvilji, baktal og dómharka eru meðal þeirra birtingarmynda sem meðvirkni hefur í för með sér. Stjórnendur og aðrir starfsmenn finna að slíkt ástand hefur í för með sér sóun á tækifærum sem annars gætu skapast. Þegar meðvirkni er alvarleg eykur hún álag á allt starfsfólk. Í versta falli ýtir ástandið undir kulnun sem veldur talsverðum kostnaði fyrir fyrirtæki og starfsfólkið sjálft. Námskeiðið byggir á fræðum Piu Mellody, sem hefur rannsakað meðvirkni í tugi ára og sett fram afar hagnýtt módel í tengslum við hana.

Á þessu námskeiði læra þátttakendur:
· Hvað meðvirkni er og hvað hún er ekki
· Hver algengustu einkenni meðvirkni eru
· Hvernig meðvirkni birtist í samskiptum á vinnustað
· Með hvaða hætti álag vegna meðvirkni getur ýtt undir kulnun

Umsjón: Valdimar Þór Svavarsson
Markhópur: Ráðnir stjórnendur og staðgenglar.*
Tími: Þriðjudagurinn 29. október kl. 13:00 - 16:00.
Staðsetning: Lionssalurinn að Skipagötu 14.
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is

*Ef þið teljið að þetta námskeið muni nýtast öðru starfsfólki hjá ykkur þá megið þið senda erindi á annalb@akureyri.is eða á almarun@akureyri.is