29.nóv

Framhaldsnámskeið í OneSystem skjalakerfinu

Lýsing: Á námskeiðinu verður farið yfir helstu atriði í sambandi við skjalamál og notkun skjalakerfisins, m.a.
• örstutt umfjöllun um skjalastjórnun, lög sem henni tengjast og þýðingu þeirra
• örstutt umfjöllun um skjalastefnu bæjarins
• leiðbeiningar um notkun kerfisins – hvar er þær að finna
• skráningu samninga, yfirlit yfir samninga sem eru að renna út o.fl. tengt utanumhaldi þeirra
• skýrslur – eldra vinnulag við skráningu þeirra og hvernig eigi að skrá þær í dag
• bréfaskrif
• skráningu fundargerða í vinnuhópum og á starfsmannafundum í kerfið
• leitir að málum, skjölum, samningum og skýrslum
• hvernig eigi að skoða skjöl eftir málalykli
• greiningarsýnir á skjöl undir málum
• aðgangsstýringar
• OneCRM flipinn í Outlook

Umsjón: Elín Dögg Guðjónsdóttir, skjalastjóri
Markhópur: Notendur OneSystem skjalakerfisins
Tímar í boði:
Miðvikudagurinn 10. október frá 13:00-14:00
Þriðjudagurinn 30. október frá 11:00-12:00
Fimmtudagurinn 29. nóvember frá 11:00-12:00
Staðsetning: Fundarsalur 2.hæð í Ráðhúsinu
Skráning: Á starfsmannavefnum http://eg.akureyri.is