Beint í efni

Hlíðarfjall - breyting á deiliskipulagi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi skíðasvæðis í Hlíðarfjalli.

Breytingin felur í sér að skipulagssvæðið stækkar um 5 ha til austurs neðan Skíðastaða. Bætt er við nýrri lóð fyrir sleðabraut frá bílastæði austan Skíðastaða og niður hlíðina til austurs. Lóð skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli minnkar um 2,8 ha og lóð sunnan Hesjuvallalands um 2,8 ha. Innan nýju lóðarinnar er heimilt að reisa allt að 1.100 metra langa sleðabraut með um 660 metra langri lyftu ásamt þjónustuhúsi fyrir vélbúnar og lítilli byggingu fyrir miðasölu við efri endastöð sleðabrautarinnar.

Deiliskipulagsuppdrátt má nálgast hér.

Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér tillöguna og senda inn ábendingar í gegnum Skipulagsgátt þar sem fram kemur nafn og kennitala.

Frestur til að skila inn ábendingum er veittur til 12. júní 2025.