Fiskitangi 2 - breyting á deiliskipulagi
Bæjarstjórn Akureyrarbæjar auglýsir hér með skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að breytingu á deiliskipulagi hafnarsvæða sunnan Glerár.
Breytingin felur í sér stækkun lóðar að Fiskitanga 2 úr 2.932,3 fm í 6.193,4 fm, sem er upprunaleg stærð lóðarinnar. Við það minnkar lóð Fiskitanga 4 og reitur 21 á skipulaginu dettur út. Jafnframt verður skilgreindur byggingarreitur fyrir vélageymslu á lóðinni, norðaustan við núverandi þjónustubyggingu Hafnarsamlags Norðurlands. Deiliskipulagi fyrir Hjalteyrargötu verður aftur breytt í núverandi mynd.
Deiliskipulagsuppdráttinn má nálgast hér.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér tillöguna og senda inn ábendingar í gegnum Skipulagsgátt þar sem fram kemur nafn og kennitala.
Frestur til að skila inn ábendingum er veittur til 12. júní 2025.