- Heimilin
- Dagþjálfun - Tímabundin dvöl
- Þjónusta
- Gæði og þróun
- Hagnýtt
Tækni til að auðvelda fólki daglegt líf – eða velferðartækni eins og hún er kölluð á Norðurlöndunum – er sem stendur á viðkvæmu stigi. Hún þarf að stíga það erfiða skref að þróast frá því að vera tilraunaverkefni í að verða samþættur hluti af þeirri almannaþjónustu sem við veitum.
Til að auðvelda þessa þróun þurfum við að leysa sum þeirra vandamála sem eru sameiginleg öllum Norðurlöndunum:
CONNECT reynir að sigrast á þessum áskorunum með því að þróa skilvirkasta ferlið til að vinna með velferðartækni – og búa til „verkfærakassa" fyrir bestu starfsvenjurnar á hverju stigi þeirrar þróunar.
Það gerum við með því að viða að okkur bestu fáanlegu starfsþekkingunni og -reynslunni, með því að vinna okkur upp frá grunni. Tíu af atkvæðamestu norrænu sveitarfélögunum mynda kjarnann í CONNECT - verkefnahópnum og starfa, í samvinnu við yfirvöld sjö landa, í anda sannra norrænna gilda á Norðurlöndunum.
Markmið okkar er að þróa ferli sem auðveldar vinnu með velferðartækni og býður upp á skipulagða nálgun og óhindrað aðgengi að bestu starfsvenjunum fyrir hvert skref sem leiðir til innleiðingar velferðartækni í daglega þjónustu.
Níu skrefa ferlið má sjá í reitnum hér að neðan – og með því að smella á hvert skref í ferlinu fæst „verkfærakassinn" fyrir bestu starfsvenjur fyrir þetta tiltekna skref.
Frekari upplýsingar um bakgrunn verkefnisins og þátttakendur þess má finna með því að smella á tenglana sem vísa á heimasíðu CONNECT hjá Norrænu velferðarmiðstöðinni og samantekt eða verkfærakassa um velferðartækni.
Af hálfu Íslands tóku sveitarfélögin Akureyri og Reykjavík þátt í verkefninu og komu fulltrúar Öldrunarheimila Akureyrar og velferðarsviðs Reykjavíkurborgar að verkefninu. (Heimild: texti frá heimasíðu Connect).
CONNECT hjá Norrænu velferðarmiðstöðinni http://www.nordicwelfare.org/sv/Projekt/Valfardsteknologi/Connect/Connect1/
verkfærakassa (pdf skjal) um velferðartækni
http://www.nordicwelfare.org/sv/Publications/Inspirationshefter/Velferoartakni---verkfari/?id=4918