Lundarskóli sigrar Skólahreysti
Lundarskóli tók þátt í Skólahreysti sem fram fór í Íþróttahöllinni á Akureyri þann 30.apríl.
Lið skólans sigraði sinn riðil og tryggði sér þannig keppnisrétt í úrslitum sem fram fara í Laugardalshöll þann 24.maí.
05. maí 2025
Keppnin í ár var mjög jöfn og spennandi og stóðu krakkarnir okkar sig mjög vel í hinum ýmsu greinum sem reyndu á styrk og þol nemenda og eins áttum við flottan hóp í stúkunni sem studdi sinn skóla.
Lið Lundarskóla skipuðu þau Patrekur Máni, Aníta Ösp, Sigyn, Aron Freyr, Arndís Ösp, Mikael Darri
Glæsilegur árangur hjá okkar nemendum
Síðast uppfært 5. maí 2025