Virk efri ár
Virk efri ár er verkefni sem er ætlað íbúum Akureyrarbæjar sem eru 60 ára og eldri.

Hægt er að mæta í alla þá valkosti sem fólk hefur áhuga á, hvort sem það er tilfallandi eða reglubundið. Þátttakendur eru hvattir til að prófa sem flest með því að leitast við að finna að lágmarki þrennt sem höfðar til þeirra.
Hægt er að skrá sig í einn mánuð í senn, án frekari skuldbindinga.
Blak, styrktaræfingar, borðtennis, dans, boccia, pokavarp (e. Cornhole), jóga, leikir, badminton, frisbígolf (folf) innandyra, pílukast, gönguferðir, sundleikfimi.

Gagnlegar upplýsingar
Netfang: virkefriar@akureyri.is
Símanúmer: 414-3788 / 865-0913
Mánaðargjald: 3.900 kr. (Greitt í gegnum Sportabler.)
Þáttaka í Virk efri ár er innifalin í Hreyfikortinu
Síðast uppfært 5. maí 2025