Giljaskóli er réttindaskóli UNICEF

Nemendur skrifa undir staðfestingarskjal þess efnis að Giljaskóli sé réttindaskóli UNICEF.
Nemendur skrifa undir staðfestingarskjal þess efnis að Giljaskóli sé réttindaskóli UNICEF.

Í dag, 20. nóvember á alþjóðlegum degi réttinda barnsins, hlaut Giljaskóli viðurkenningu sem Réttindaskóli UNICEF. Skólinn er jafnframt sá fyrsti utan höfuðborgarsvæðisins til þess að hljóta þá viðurkenningu. Réttindaskólar stuðla að fræðslu um réttindi barna, til nemenda, foreldra og starfsfólks.

Innleiðing verkefnisins hófst fyrir um einu og hálfu ári síðan í tengslum við innleiðingu Akureyrarbæjar á Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, en bærinn hlaut fyrr á árinu viðurkenningu sem fyrsta Barnvæna sveitarfélag landsins.

Innan Giljaskóla hefur verið myndað réttindaráð með fulltrúum nemenda, foreldra og starfsfólks. Ráðið hefur séð um innleiðinguna og mun halda áfram að stuðla að fræðslu um réttindi barna.

Starfshættir, líðan, aðgengi og öryggi nemenda og starfsfólks var kortlagt og vann ráðið aðgerðaáætlun til næstu þriggja ára þar sem unnið er að úrbótum á ákveðnum þáttum. Ráðið hefur nú þegar stuðlað að því að réttindadagur er haldinn hátíðlegur með þemavinnu út frá réttindum barna hvert ár, barnasáttmálinn hefur verið hengdur í stórri upplausn miðsvæðis í skólanum og réttindi vikunnar eru á upplýsingaskjá skólans.

Kristín Jóhannesdóttir skólastjóri Giljaskóla segist fagna þessum áfanga. „Skólar eru fyrir börn og því eiga réttindi þeirra að vera í hávegum höfð. Það hefur verið lærdómsríkt að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni og við erum stolt af árangrinum hingað til. Ég vona að skólastarfið í Giljaskóla verði þekkt fyrir viðurkenningu á réttindum barna og lýðræðislegt skólastarf sem einkennist af þátttöku nemenda og jafnrétti."

Í tilefni dagsins var þemadagur í Giljaskóla og unnu nemendur verkefni sem tengjast réttindum barna. Að lokinni viðurkenningarathöfn, sem var rafræn sökum aðstæðna, var boðið upp á skúffuköku og skrifaði hver árgangur undir staðfestingarskjal sem hengt verður upp í skólanum.

Til hamingju, nemendur og starfsfólk Giljaskóla!

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan