Ráðhús Akureyrarbæjar - dómnefndarálit vegna hönnunarsamkeppni um viðbyggingu og endurbætur á núverandi húsnæði og lóð

Mynd úr verðlaunatillögu Yrki arkitekta
Mynd úr verðlaunatillögu Yrki arkitekta

Bæjarstjórn Akureyrar hefur ákveðið að ráðist skuli í viðbyggingu við Ráðhús Akureyrar að undangenginni samkeppni um útlit hússins. Markmiðið með framkvæmdinni er að færa alla miðlæga starfsemi Akureyrarbæjar á einn stað en fram að þessu hefur stjórnsýslan verið til húsa bæði að Geislagötu 9 og Glerárgötu 26. Með því að sameina alla stjórnsýslu sveitarfélagsins undir einu þaki í húsnæði sem er alfarið í eigu Akureyrarbæjar næst fram umtalsvert hagræði og mun lægri rekstrarkostnaður til lengri tíma litið.
Samkeppnin var hönnunarsamkeppni að undangengnu forvali sem var opið öllum sem uppfylltu skilyrði forvalslýsingar. Forvalið var auglýst á vef Akureyrarbæjar, á vef Arkitektafélags Íslands og Evrópska efnahagssvæðinu. Skilafrestur var til 30. mars 2021. Alls bárust 14 umsóknir um þátttöku í forvalinu, 10 almennar umsóknir og 4 "wild card" umsóknir. Forvalsnefnd gaf umsóknum stig í samræmi við forvalsgögnin og er niðurstaðan að eftirfarandi fjórum stofum var boðin þátttaka í boðkeppninni: A2F arkitektum, Studio 4A, Studio Granda og Yrki arkitektum. 
Keppnislýsing var gefin út 16. apríl og fengu valdir hönnuðirnir rúma tvo mánuði til að skila inn tillögum. Skilafrestur var til 24. júní 2021. 
Dómnefnd hafði það að meginmarkmiði að finna tillögu sem leysti viðfangsefnið á heildstæðan hátt með vandaðri og góðri byggingarlist sem hæfði Ráðhúsi Akureyrar og væri í samræmi við áherslur sem fram komu í samkeppnislýsingu.

Ákveðið var að veita einni tillögu fyrstu verðlaun. Tillögurnar fjórar voru mjög ólíkar og svara væntingum keppnislýsingar misvel. Niðurstaða dómnefndar var að veita tillögu merktri 14604 frá Yrki arkitektum ehf. fyrstu verðlaun og mælir með henni til frekari útfærslu.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan