Útboð á utanhússmálun og múrviðgerðum

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í utanhússmálun og múrviðgerðir á eftirfarandi eignum, um er að ræða aðskilin útboð:
- Lundarskóla C álmu
- Þrastarlund 3-5
- Hríseyjargötu 21

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með föstudeginum 4. mars 2022.

  • Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins.

 

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 16. mars 2022 kl. 13:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.