Útboð á grasslætti

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í grasslátt á árunum 2022-2023 með möguleika á framlengingu árið 2024 samkvæmt útboðsgögnum á ákveðna hluta eftirfarandi svæða innan Akureyrarbæjar:

Opin svæði
Nausta- og Hagahverfi
Stofnanalóðir 

Bjóðendum er heimilt að bjóða í eitt eða fleiri svæði.

Útboðið er boðið út á EES svæðinu og er tungumál útboðsins íslenska.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 10. mars 2022

  • Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 11:00 mánudaginn 11. apríl 2022 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.