Útboð á framkvæmdum við jarðvegsskipti á íþróttasvæði KA á Akureyri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í jarðvegsskipti og jöfnun undir keppnisvöll og stúku á félagssvæði KA.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með föstudeginum 4. Júlí 2022.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 28. júlí 2022 kl. 13:00 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Verkkaupi áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.