Útboð á ferlibifreiðum fyrir Strætisvagna Akureyrarbæjar

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í tvær ferlibifreiðar, sem ganga fyrir umhverfisvænum orkugjöfum, fyrir farþegaflutninga í ferliþjónustu Strætisvagna Akureyrarbæjar.

Útboðið er boðið út á EES svæðinu og er tungumál útboðsins íslenska.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 25. apríl 2022.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins.

Fyrirspurnartíma lýkur mánudaginn 16. maí 2022.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 11:00 miðvikudaginn 25. maí 2022.