Útboð á endurbótum á gangstéttum á Akureyri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í endurbætur á gangstéttum á nokkrum stöðum í bænum. Akureyrarbær leggur til malbik til verksins. 

Verkinu skal að fullu lokið 15. júní 2023.

Helstu magntölur munu birtast á útboðsvef Akureyrarbæjar.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með 17. apríl 2023.

Tilboðum skal skila í gegnum útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 14.00 miðvikudaginn, 3. maí 2023 og verða tilboð opnuð á sama stað og tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.