Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar auglýsir til sölu tvö hús til flutnings.

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar auglýsir til sölu tvö hús til flutnings.

Annars vegar er um að ræða hús sem hefur verið notað sem aðstöðuhúsnæði fyrir Siglingarklúbbinn Nökkva, stærð 39,5 m², byggt árið 1994.

Hins vegar er um ræða hús sem hefur verið notað sem bátaskýli fyrir Siglingarklúbbinn Nökkva, stærð 68,2 m², byggt árið 2000.

Flutningur húsa er á ábyrgð og kostnað kaupanda.

Allar nánari upplýsingar eru gefnar í gegnum netfangið umsarekstur@akureyri.is.

Tilboðum skal skila rafrænt á sama netfang eigi síðar en kl. 11:00 miðvikudaginn 8. júní 2022 og verða tilboð opnuð á sama tíma.

Umhverfis- og mannvirkjasvið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.