Útboð á snjótroðurum fyrir Hlíðarfjall á Akureyri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í kaup á snjótroðurum fyrir hönd Hlíðarfjalls á Akureyri.

Útboðið er boðið út á EES svæðinu og er tungumál útboðsins íslenska.

Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 11. apríl 2022

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins.

Fyrirspurnartíma 1 lýkur miðvikudaginn 27. apríl 2022.

Fyrirspurnartíma 2 lýkur miðvikudaginn 11. maí 2022.

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 13:00 miðvikudaginn 25. maí 2022.