Útboð á endurbótum á A álmu og viðbyggingu í Glerárskóla á Akureyri

Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar óskar eftir tilboðum í endurbætur á A-álmu og viðbyggingu við tengigang í Glerárskóla á Akureyri: um er að ræða heildarendurbætur á um 1250 fermetrum og viðbygging við tengigang um 155 fermetrar ásamt þaki og þakrými ,verkið nær einnig til inngarða beggja megin við álmuna.

Framkvæmdatíminn er frá maí 2022 til júní 2023.

Útboðsgögn verða afhent á útboðsvef Akureyrarbæjar, frá og með 12. apríl 2022. 

Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar fyrir kl. 11.00 miðvikudaginn 11. maí 2022 og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.