Listasafnið á Akureyri - útboð á rekstri kaffihúss

Listasafnið á Akureyri
Listasafnið á Akureyri

Listasafnið á Akureyri leitar eftir aðila/aðilum til að annast rekstur á kaffihúsi í Listasafninu

Góð aðstaða er fyrir kaffihús á jarðhæð Listasafnsins. Kaffihúsið er sjálfstæð eining á góðum stað í Listagilinu en jafnframt mikilvægur hluti af Listasafninu.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá þriðjudeginum 16. mars 2021 og verða aðgengileg á þessari slóð.
Tilboðum skal skila rafrænt  fyrir kl. 16:00 fimmtudaginn 8. apríl 2021.

Nánari upplýsingar veitir Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins hlynurhallsson@listak.is og í síma 461 2619 og 659 4744.