Hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri

Holtahverfi
Holtahverfi

Akureyrarbær og Norðurorka bjóða út hönnun gatna og stíga í Holtahverfi á Akureyri.

Verkið felst í því að hanna götur í Holtahverfi Norður, sem er þéttingarreitur í Holtahverfi. Í verkhönnun felst fullhönnun gatna og stíga með veitukerfum, þ.e.a.s. götulýsingu, fráveitu auk þess að taka við hönnunargögnum vegna vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu, símalagna og ljósleiðara og fella inn í hönnunarteikningar.

Í verkinu felst einnig gerð mæliblaða auk verklýsingar og útboðsgagna vegna gatnaframkvæmda. Hönnun leik- og útivistarsvæða, opinna svæða og yfirborðsfrágangs.

Heildarlengd nýrra gatna er um 1 km og endurhönnun gatna um 1 km og verður verkinu skipt upp í verkþætti með mismunandi skiladögum.

Kynningarfundur:

Kynningarfundur verður haldinn á Teams, fimmtudaginn 4. mars kl. 13:00

Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá föstudeginum 26. febrúar og verða aðgengileg á þessari slóð.

Ef það vakna upp spurningar sendið tölvupóst á netfangið umsarekstur@akureyri.is

Tilboð skulu hafa borist umhverfis- og mannvirkjasviði Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, 4. hæð, eigi síðar en 18. mars 2021, klukkan 14:00 og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan