Fjölbýlishúsalóðir við Miðholt - Auglýsing lóða

Akureyrarbær auglýsir lausar til úthlunar fjölbýlishúsalóðir við Miðholt í Holtaverfi. Um er að ræða fimm lóðir þar sem heimilt er að byggja tveggja hæða fjölbýlishús ásamt kjallara. Byggingarmagn á hverri lóð er á bilinu 718-743 fm og gert ráð fyrir 6 íbúðum í hverju húsi.

Vegna jarðvegsaðstæða er talið mikilvægt að uppbygging svæðisins verði unnin með samræmdum hætti og jafnvel þannig að allar lóðirnar verði undirbúnar á sama tíma áður en uppbygging hefst. Lóðunum fimm verður því úthlutað til sama aðila.

Úthlutunarskilmála og fylgiskjöl má nálgast Hér.

Vinsamlegast athugið að nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita umsókn fyrir hönd umsækjenda

Umsókn skal skilað inn rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigin síðar en kl. 12:00 þann 2. febrúar 2023.

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan