Velferðarráð

1397. fundur 08. janúar 2025 kl. 14:00 - 15:49 Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Hólmgeir Karlsson
  • Guðbjörg Anna Björnsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Halla Birgisdóttir Ottesen áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Ingólfur Örn Helgason fundarritari
Fundargerð ritaði: Ingólfur Helgason fundarritari
Dagskrá
Halla Birgisdóttir Ottesen F-lista sat fundinn í forföllum Tinnu Guðmundsdóttur.

1.Okkar heimur góðgerðarsamtök - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2024101030Vakta málsnúmer

Á fundi velferðarráðs 27. nóvember 2024 var afgreiðslu styrkbeiðnar frestað og óskað eftir frekari upplýsingum.

Aðstandendum verkefnisins var boðið að koma á fund ráðsins. Sigríður Gísladóttir og Elísabet Ýrr Steindórsdóttir frá Okkar heimi sátu fundinn undir þessum lið og kynntu verkefnið.
Velferðarráð þakkar góða kynningu á verkefninu. Velferðarráð er tilbúið að styrkja verkefnið um kr. 400. 000 með þeim fyrirvara að fyrir liggi að verkefnið sé að fullu fjármagnað og ljóst að það fari af stað.

2.Fræðsluáætlun velferðarsviðs - fræðslustjóri að láni

Málsnúmer 2024051761Vakta málsnúmer

Kynning á fræðsluáætlun velferðarsviðs. Ingunn H. Bjarnadóttir og Sigurlaug Indriðadóttir Unnardóttir frá Símey sjá um kynninguna.

3.Áfrýjanir vegna styrkja vegna náms og verkfæra og tækjakaupa

Málsnúmer 2025010110Vakta málsnúmer

Lögð fram áfrýjun vegna umsóknar um styrk vegna náms og verkfæra og tækjakaupa. Aðalbjörg Guðný Árnadóttir ráðgjafi í málaflokki fatlaðra sat fundinn undir þessum lið.
Áfrýjun vegna styrkumsóknar og afgreiðsla hennar færð í trúnaðarbók.

4.Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2024-2025

Málsnúmer 2024120543Vakta málsnúmer

Lagðar fram til samþykktar breytingar á reglum um sérstakan húsnæðisstuðning.

Guðni Örn Hauksson húsnæðisfulltrúi sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til bæjarstjórnar.

Fundi slitið - kl. 15:49.