Velferðarráð

1362. fundur 11. janúar 2023 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Hulda Elma Eysteinsdóttir formaður
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Karl Liljendal Hólmgeirsson
  • Tanja Hlín Þorgeirsdóttir
  • Snæbjörn Ómar Guðjónsson
  • Elsa María Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
  • Tinna Guðmundsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Dagskrá
Tanja Hlín Þorgeirsdóttir B-lista sat fundinn í forföllum Ölfu Jóhannsdóttur.
Tinna Guðmundsdóttir F-lista sat fundinn í forföllum Málfríðar Stefaníu Þórðardóttur.

1.Velferðarsvið - kynning á starfsemi fyrir velferðarráð 2023

Málsnúmer 2023010262Vakta málsnúmer

Heimsókn í þjónustukjarnann að Klettaborgum 43.

Kristinn Már Torfason forstöðumaður tók á móti velferðarráði og sýndi húsnæðið.

2.Barnaverndarsþjónusta - samningur við Dalvíkurbyggð

Málsnúmer 2023010023Vakta málsnúmer

Drög að samningi við Davíkurbyggð um barnaverndarþjónustu kynnt. Samningurinn fer einnig til umfjöllunar í bæjarstjórn Dalvíkur.

Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti með þeim athugasemdum sem komu fram á fundinum og vísar þeim áfram til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

3.Barnaverndarþjónusta - samningur við Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahrepp, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp

Málsnúmer 2023010024Vakta málsnúmer

Drög að samningi við Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahrepp, Hörgársveit og Svalbarðsstrandarhrepp um barnaverndarþjónustu kynnt. Samningurinn fer einnig til umfjöllunar í sveitarstjórnum þessara sveitarfélaga.

Halldóra K. Hauksdóttir lögfræðingur og Vilborg Þórarinsdóttir forstöðumaður sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti með þeim athugasemdum sem komu fram á fundinum og vísar þeim áfram til fullnaðarafgreiðslu í bæjarráði.

4.Innleiðing á nýrri þjónustu við foreldra

Málsnúmer 2023010027Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. janúar 2023 þar sem innleiðing á nýrri þjónustu við foreldra sem eiga í erfiðleikum með uppeldi barna sinna er kynnt.

Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður sat fundinn undir þessum lið.

5.Velferðarráð - málefni fatlaðs fólks - úttekt 2021

Málsnúmer 2021023280Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað dagsett 11. janúar 2023 um stöðu verkefna tengd greiningu á rekstri og stjórnsýslu í málaflokki fatlaðs fólks 2021.

Guðrún Guðmundsdóttir starfandi þjónustustjóri sat fundinn undir þessum lið.

Fundi slitið - kl. 17:00.