Velferðarráð

1342. fundur 08. september 2021 kl. 14:00 - 15:33 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Heimir Haraldsson formaður
  • Hermann Ingi Arason
  • Guðrún Karitas Garðarsdóttir
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðrún Ólafía Sigurðardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Karólína Gunnarsdóttir þjónustustjóri velferðarsviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá

1.Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa

Málsnúmer 2010030022Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingum á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa út frá lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.

Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur velferðarsviðs og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa og vísar málinu til bæjarstjórnar.

2.Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2022

Málsnúmer 2021080521Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2022 og starfsáætlun sviðsins 2022 - 2025.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

3.Starfsáætlanir ráða 2022

Málsnúmer 2021080829Vakta málsnúmer

Lögð fram starfsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2022.
Velferðarráð samþykkir framlagða starfsáætlun.

4.Framkvæmdaáætlun velferðarsviðs 2022 - 2026

Málsnúmer 2021090113Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að framkvæmda- og viðhaldsáætlun velferðarsviðs fyrir árin 2022 - 2026.
Velferðarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar hjá umhverfis- og mannvirkjaráði.

5.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2021

Málsnúmer 2021031922Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs fyrstu sjö mánuði ársins.

Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.

6.Stefnumótun í öldrunarþjónustu

Málsnúmer 2021081400Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða sem kynnt var á Heilbrigðisþingi þann 20. ágúst sl. Um er að ræða skýrslu Halldórs S. Guðmundssonar dagsetta í júní 2021: Virðing og reisn. Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk.

Enn fremur er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:33.