Velferðarráð

1296. fundur 06. mars 2019 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Petrea Ósk Sigurðardóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
  • Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri öa
  • Kristín Birna Kristjánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: Kristín Birna Kristjánsdóttir
Dagskrá
Petrea Ósk Sigurðardóttir B-lista mætti í forföllum Gunnfríðar Elínar Hreiðarsdóttur.

1.Fjárhagsaðstoð - reglur

Málsnúmer 2019010388Vakta málsnúmer

Málið var áður á dagskrá velferðarráðs 6. febrúar. Þá var starfsmönnum falið að vinna kostnaðaráætlun og leggja fram lokadrög að reglum.

Halldóra Kristín Hauksdóttir lögfræðingur fjölskyldusviðs og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður félagsþjónustu fjölskyldusviðs sátu fundinn undir þessum lið.
Endurskoðun á reglum um fjárhagsaðstoð samþykkt samhljóða og vísað til bæjarstjórnar.

2.Þolendamiðstöð á Norðurlandi

Málsnúmer 2019020449Vakta málsnúmer

Stofnuð hafa verið samtök sem heita Þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis á Norðurlandi. Um er að ræða samstarfsverkefni Lögreglustjórans á Akureyri, Akureyrarbæjar, Aflsins, Háskólans á Akureyri, Sjúkrahússins á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, Samtaka um kvennaathvarf, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Kvennaráðgjafarinnar.

Tilgangurinn er að stofna og reka þjónustmiðstöð fyrir fullorðið fólk sem hefur verið beitt ofbeldi.

Halldór Sigurður Guðmundsson framkvæmdastjóri ÖA kom inn á fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar.

3.Kynningaráætlanir sviða 2019

Málsnúmer 2019020253Vakta málsnúmer

Lagðar fram kynningaráætlanir búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrarbæjar í samræmi við aðgerðaráætlun upplýsingastefnu Akureyrarbæjar.
Kynningaráætlanir sviða samþykktar og sviðsstjóra falið að senda til Akureyrarstofu.

4.Velferðarstefna 2018-2023

Málsnúmer 2018081103Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að aðgerðaráætlun velferðarstefnu búsetusviðs, fjölskyldusviðs og Öldrunarheimila Akureyrarbæjar.
Sviðsstjórum falið að vinna að og ljúka við uppsetningu og ritstjórn aðgerðaráætlunarinnar.

5.Öldrunarþjónusta - biðlistar

Málsnúmer 2016020149Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór Sigurður Guðmundsson, lagði fram yfirlit um fjölda einstaklinga sem metnir eru af færni- og heilsumatsnefnd í þörf fyrir dvalar- og hjúkrunarrými þann 1. mars 2019 ásamt upplýsingum um fjölda umsækjenda í bið eftir dagþjálfun.
Lagt fram til kynningar.

6.Rósin - sérúrræði í raðhús

Málsnúmer 2019030013Vakta málsnúmer

Framkvæmdastjóri ÖA, Halldór Sigurður Guðmundsson, greindi frá hugmyndum og áformum um að nýta raðhúsaíbúð sem sérúrræði sem ætlað væri til tímabundinnar dvalar vegna sérþarfa einstaklinga með heilabilun. Kynnti hann aðdraganda þessa og að ÖA hefur áður þurft að útbúa slíkt sérúrræði. Gera má ráð fyrir vaxandi þörf fyrir slíkt úrræði á næstu árum. Bakgrunnur og fyrirmynd er sótt í fyrri reynslu tilvika innan ÖA og til tilurðar og skipulags sambærilegs úrræðis í Danmörku (https://arresoeplejecenter.halsnaes.dk/Rosen.aspx).

Lögð verður áhersla á sérstakan aðbúnað, nýja tækni og aðferðir s.s. á sviði skynörvunar og skynjunar. Slík aðstaða mun nýtast einstaklingum í dagþjálfun og á hjúkrunarheimilinu og mögulega einnig öðrum þjónustueiningum hjá Akureyrarbæ.
Lagt fram til kynningar.

7.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2018

Málsnúmer 2018040006Vakta málsnúmer

Lagt er fram til kynningar rekstraryfirlit 2018.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs og Guðrún Sonja Kristinsdóttir verkefnastjóri búsetusviði sátu fundinn undir þessum lið.

8.Búsetusvið - þjálfun í heimahúsi

Málsnúmer 2019030029Vakta málsnúmer

Kynning á nýju úrræði í heimaþjónustu, endurhæfingarteymi heim. Stefnan og tilgangur þjónustunnar, hugmyndafræðin, uppbygging teymisins, hvaða matstæki verður notast við, íhlutun og endurmat.

Guðrún Sonja Kristinsdóttir verkefnastjóri á búsetusviði sat fundinn undir þessum lið og kynnti verkefnið.

Kolbeinn Aðalsteinsson skrifstofustjóri búsetusviðs sat fundinn undir þessum lið.
Lagt fram til kynningar

Fundi slitið - kl. 17:00.