Velferðarráð

1289. fundur 21. nóvember 2018 kl. 14:00 - 17:00 Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Róbert Freyr Jónsson
  • Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
  • Hermann Ingi Arason
  • Lára Halldóra Eiríksdóttir
  • Sigrún Elva Briem áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Karólína Gunnarsdóttir forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs
  • Jón Hrói Finnsson sviðsstjóri búsetusviðs
  • María Sigurbjörg Stefánsdóttir fundarritari
Fundargerð ritaði: María Sigurbjörg Stefánsdóttir
Dagskrá
Formaður óskaði eftir leyfi til að færa fundarlið 1 í fundarboði, aftur sem lið nr. 5.
Samþykkt einróma.

1.Jólaaðstoð - styrkbeiðni til velferðarráðs

Málsnúmer 2018110102Vakta málsnúmer

Jólaaðstoð - Samstarf Mæðrastyrksnefndar Akureyrar, Hjálparstarfs kirkjunnar, Hjálpræðishersins og Rauða krossins við Eyjafjörð, sækir um ótilgreindan styrk til að aðstoða fjölskyldur fyrir jólin.
Velferðarráð samþykkir einróma að veita styrk að fjárhæð kr. 500.000.

2.Samræming á upplýsingum vegna þjónustu fyrir eldri borgara

Málsnúmer 2018100168Vakta málsnúmer

Öldungaráð Akureyrarbæjar óskar eftir því við velferðarráð að það hlutist til um að hafin verði vinna við að samræma upplýsingar, yfirsýn og tengiliði vegna heimaþjónustu og stoðþjónustu fyrir eldri borgara.
Velferðarráð felur sviðsstjóra búsetusviðs og forstöðumanni þjónustudeildar fjölskyldusviðs að afla frekari upplýsinga og vinna áfram að málinu.

3.Fjárhagsáætlun 2019 - velferðarsvið

Málsnúmer 2018060382Vakta málsnúmer

Farið yfir stöðu mála varðandi fjárhagsáætlun.
Sviðsstjóri búsetusviðs og forstöðumaður þjónustudeildar fjölskyldusviðs fóru yfir hugmyndir um lækkun útgjalda.

4.Velferðarráð - rekstraryfirlit 2018

Málsnúmer 2018040006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir þróun yfirvinnuhlutfalls.

5.ÖA - úthlutun rýmis

Málsnúmer 2018100360Vakta málsnúmer

Helga Guðrún Erlingsdóttir hjúkrunarforstjóri ÖA kynnti málið og sat fundinn undir þessum lið.

6.Velferðarráð - Heimsóknir á starfsstöðvar

Málsnúmer 2018110184Vakta málsnúmer

Heimsókn velferðarráðs í búsetukjarnann í Kjalarsíðu og Bugðusíðu.

Fundi slitið - kl. 17:00.