Ungmennaráð

33. fundur 07. desember 2022 kl. 16:00 - 18:00 Íþróttahöllin
Nefndarmenn
  • Anton Bjarni Bjarkason
  • Ásta Sóley Hauksdóttir
  • Elva Sól Káradóttir
  • Erika Arna N. Sigurðardóttir
  • Felix Hrafn Stefánsson
  • Freyja Dögg Ágústudóttir
  • Fríða Björg Tómasdóttir
  • Heimir Sigurpáll Árnason
  • Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
  • Telma Ósk Þórhallsdóttir
Starfsmenn
  • Karen Nóadóttir umsjónarmaður ungmennaráðs
  • Arnar Már Bjarnason forvarna- og félagsmálafulltrúi
  • Hafsteinn Þórðarson fundarritari
Fundargerð ritaði: Karen Nóadóttir umsjónarmaður
Dagskrá

1.Ungmennaráð - breytingar í nefndum og kosning áheyrnarfulltrúa 2022

Málsnúmer 2022030297Vakta málsnúmer

Nýir fulltrúar voru boðnir velkomnir á sinn fyrsta fund með ungmennaráði og kjör þeirra staðfest.

Alfa Aradóttir forstöðumaður forvarna- og frístundardeildar kynnti sig og starfsemi deildarinnar.
Þann 6. desember sl. var skipað í ungmennaráð að undangenginni kosningu.


Áfram sitja í ráðinu:

Anton Bjarni Bjarkason

Ásta Sóley Hauksdóttir

Elva Sól Káradóttir

Freyja Dögg Ágústudóttir

Fríða Björg Tómasdóttir

Lilja Dögun Lúðvíksdóttir

Telma Ósk Þórhallsdóttir


Nýir fulltrúar eru:

Erika Arna Sigurðardóttir

Felix Hrafn Stefánsson

Haukur Arnar Ottesen Pétursson

Heimir Sigurpáll Árnason

2.Barnamenningarsjóður

Málsnúmer 2022120157Vakta málsnúmer

Ungmennaráð tilnefndi tvo fulltrúa í faghóp Barnamenningarsjóðs, sem fer yfir umsóknir í sjóðinn. Fulltrúar verða Anton Bjarki Bjarnason og Lilja Dögun Lúðvíksdóttir.

3.Hafnarstræti 16 - breyting á deiliskipulagi

Málsnúmer 2022061609Vakta málsnúmer

Ungmennaráð tók til umsagnar tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030 og deiliskipulagi Innbæjar vegna áforma um stækkun íbúðakjarna á lóð Hafnarstrætis 16.
Ungmennaráð Akureyrarbæjar harmar að það eigi að minnka leiksvæðið, en fyrst það á að fara í þessa framkvæmd þá vill ungmennaráð að farið verði í framkvæmd á leiksvæði sem allra fyrst og að ungmennaráð, sem og ungmenni í innbænum verði þátttakendur í ákvörðunartökunni þegar það kemur að uppbyggingunni.

4.Ungt fólk - æskulýðsrannsóknir - 2022-2024

Málsnúmer 2022120455Vakta málsnúmer

Fyrirhugaðar viðbótarspurningar um áfallasögu í íslenskum æskulýðsrannsóknum kynntar fyrir ungmennaráði. Óskað var eftir tillögum fyrir gerð áhættumats í tengslum við fyrirlögn slíkra spurninga. Umsjónarmaður tók saman tillögur ungmennaráðsins og verða þær nýttar við gerð áhættumatsins.

5.Ungmennaráð - önnur mál

Málsnúmer 2022120502Vakta málsnúmer

Rætt var um aukið samstarf við nemendafélög í grunnskólum Akureyrar og verður fulltrúa hvers ráðs boðið á næsta fund ungmennaráðs til að styrkja boðleiðir milli ungmennaráðs og nemenda grunnskólanna. Einnig var minnst á komandi verkefni ungmennaráðs, svo sem stórþing ungmenna í febrúar og bæjarstjórnarfund unga fólksins í mars.

Fundi slitið - kl. 18:00.