Umhverfisnefnd

107. fundur 08. september 2015 kl. 10:00 - 12:02 Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
Nefndarmenn
  • Dagbjört Elín Pálsdóttir formaður
  • Kristján Ingimar Ragnarsson
  • Óskar Ingi Sigurðsson
  • Áshildur Hlín Valtýsdóttir
  • Kristinn Frímann Árnason
  • Ólafur Kjartansson áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Fundargerð ritaði: Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála
Dagskrá

1.Jafnréttisstefna 2015-2019

Málsnúmer 2015060217Vakta málsnúmer

Tekin fyrir að nýju Jafnréttisstefna Akureyrarbæjar 2015-2019.

Sigríður Stefánsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar mætti á fundinn og kynnti stefnuna.
Umhverfisnefnd þakkar kynninguna og samþykkir Jafnréttisstefnuna fyrir sitt leyti.

2.Vistorka

Málsnúmer 2015030145Vakta málsnúmer

Kynning á starfsemi Vistorku.

Guðmundur Haukur Sigurðarson framkvæmdastjóri Vistorku og Sigurður Ingi Friðleifsson framkvæmdastjóri Orkuseturs mættu á fundinn.
Umhverfisnefnd þakkar Guðmundi Hauki og Sigurði Inga fyrir greinargóða kynningu á starfsemi Vistorku.

3.Samgönguvika 2015

Málsnúmer 2015080054Vakta málsnúmer

Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála fór yfir viðburði Samgönguviku sem hefst þann 16. september nk.

4.Umhverfis- og samgöngustefna

Málsnúmer 2015010196Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað, ódagsett, frá Dagbjörtu Elínu Pálsdóttur formanni umhverfisnefndar varðandi starfshóp.
Umhverfisnefnd samþykkir að Dagbjört Elín Pálsdóttir og Áshildur Hlín Valtýsdóttir skipi starfshóp um umhverfis- og samgöngustefnu fyrir Akureyri.

Fundi slitið - kl. 12:02.